close
Fara í innihald

Rojava

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lýðræðislega fylkjasambandið í Norður-Sýrlandi
Rojava
Rojavaya Kurdistanê
Skáletraður texti
Fáni Skjaldarmerki
Höfuðborg Qamishli
Opinbert tungumál Kúrdíska, arabíska og fornsýrlenska
Stjórnarfar Lýðræðislegt fylkjasamband
Forseti
Forseti
Hediya Yousef
Mansur Selum
''De facto'' Sjálfstjórnarsvæði
  Lýst yfir sjálfstjórn á landsvæðinu og stofnskrá Rojava tekin í gildiJanúar 2014 
  Lýst yfir stofnun fylkjasambands17. mars 2016 
  Innlimun í sýrlenska ríkið20. ágúst 2026 
Flatarmál
  Samtals

50,000 km²
Mannfjöldi
  Samtals (2018)
  Þéttleiki byggðar

≈2,000,000 (áætlað)
≈40/km²
Gjaldmiðill Sýrlenskt pund
Tímabelti UTC+2

Lýðræðislega fylkjasambandið í Norður-Sýrlandi (Kúrdíska: Rojavaya Kurdistanê) betur þekkt sem Fylkjasambandið Rojava var de facto sjálfstjórnarsvæði í Norður og Austurhluta Sýrlands sem starfaði út frá hugmyndum um lýðræðislega sambandsstjórn. Fylkjasambandið Rojava skiptist í 3 kantónur: Jazira-hérað (Kúrdíska: cizîrê), Efrat-hérað (Kúrdíska: Herêma Firatê‎), áður þekkt sem Kobane-hérað í Norður-Sýrlandi og Afrín-hérað (Kúrdíska: efrîn) Í Norð-Vesturhluta landsins. Ásamt kantónunum þrem tóku fulltrúar svæðisbundinna ráða í Raqqa, Manbij, Tabqa og Deir ez-Zor þátt í starfi fylkjasambandsins.

Landafræði

[breyta | breyta frumkóða]

Kúrdistan er lauslega skilgreint svæði í fjallahéröðum Tyrklands, Írans, Íraks og Sýrlands. Rætur kúrdísku þjóðarinnar má rekja til ólíkra þjóðflokka í fjallahéröðum norð-austur af Mesapótamíu á 7. öld sem lutu stjórn Býsansríkis og Persaveldis. Heimkynni Kúrda tilheyrðu Ottómanveldinu fyrir fyrri heimsstyrjöldina og að stríðinu loknu stóð til að gera ráð fyrir kúrdísku ríki í Mið-Austurlöndum. Í lokadrögum Versalasamninganna er Stór-Kúrdistan þó skipt milli fjögurra landa. Vesturhluti Kúrdistans lendir innan landamæra Sýrlands og dregur Rojava nafn sitt af kúrdíska orðinu fyrir vestur. Sýrlenskir Kúrdar eru í meirihluta víða í norðanverðu landinu og frá og með þriðja áratugi 20. aldar hafa þeir verið stærsta þjóðarbrot innan Sýrlands að frátöldum Aröbum. Fylkasambandið Rojava samanstóð af þremur sjálfstjórnarhéruðum í norður- og norðvesturhluta Sýrlands. Jazira-hérað og Efrat-hérað mynduðu landfræðilega heild en Afrin-hérað liggur vestar í landinu og átti ekki landamæri við hin fylki sambandsins. Landsvæðið sem fylkjasambandið fór með yfirráð yfir var þó nokkuð breytilegt sökum átaka á svæðinu.

Aðdraganda stofnunar fylkjasambandsins Rojava í Norður-Sýrlandi má rekja aftur til stofnunar stjórnmálaflokksins PYD, Lýðræðishreyfingu Sýrlands árið 2003, sem skipulagður var í kringum hugmyndir Abdullah Öcalan um lýðræðislega sjálfstjórn samfélaga. Árið 2011 var lýðræðishreyfingin TEV-DEM stofnuð og tóku hreyfingarnar tvær höndum saman við upphaf arabíska vorsins í Sýrlandi með það að markmiði að leggja grunn að sjálfstjórn Rojava-svæðisins. Framtak þessara hreyfinga var kallað Rojava-verkefnið. Árið 2012 tóku varnarsveitir Kúrda í Rojava, YPG og YPJ, völd yfir stærsta hluta landsvæðisins sem tilheyrði síðar Rojava. Í kjölfar þess dró stjórnarher Assads sig í hlé á þessu tiltekna svæði sem færði PYD-flokknum aukið tækifæri til þess að leggja grunn að nýrri samfélagsskipan. Sama ár var ráðgjafaþing Vestur-Kúrdistan, MBRK, sett á laggirnar. Í mars 2016 hittust fulltrúar frá kantónunum þrem: Efrat, Jazira og Afrin til þess að tilkynna formlega um stofnun fylkjasambands undir þeim ákvæðum sem finna mátti í stofnskrá sambandsins.

Stjórnarskrá

[breyta | breyta frumkóða]

Samkvæmt stjórnarskrá Rojava samanstóðu hin lýðræðislegu sjálfstjórnarfylki af þremur kantónum: Afrin-héraði, Jazirah-héraði og Kobane-héraði. Stjórnkerfið lýsti sér í tengslaneti sjálfstæðra eininga sem höfðu fullt sjálfsforræði og ræddu eigin mál á opnum íbúafundum. Kantónunum átti að stjórna út frá hugmyndum um valddreifingu, grasrótarlýðræði og fjölhyggju. Í stjórnarskránni var kveðið á um bandalag Kúrda, Araba, Assýrumanna, Kaldeumanna, Túrkmena, Armena og Tsjetsjena á landsvæðinu. Sambúð þeirra ólíku hópa sem svæðið byggja átti að vera friðsamleg og tryggja rétt allra íbúa til þess að iðka menningu, trú og móðurmál sitt innan fylkjasambandsins.Fylkjasambandið miðaði ekki að því að stofna ríki sem væri að öllu aðskilið frá sýrlenska ríkinu, heldur sjálfstjórnarsvæði innan Sýrlands. Samkvæmt stofnskránni var hlutverk Rojava-verkefnisins einnig að beina Sýrlandi í átt frelsis og lýðræðis að stríðslokum. Hver kantóna innan sambandsins fór með nokkuð mikla sjálfstjórn og tók stofnskrá Rojava afstöðu gegn miðstýringu í stjórnkerfinu og lagði frekar áherslu á grasrótarlýðræði þar sem vald væri í höndum fólksins.

Lýðræðislegt fylkjasamband

[breyta | breyta frumkóða]

Abdullah Öcalan, stofnandi Kúrdíska verkamannaflokksins í Tyrklandi, er fremsti kenningasmiður hugmyndarinnar um lýðræðislegt fylkjasamband Kúrda. Samkvæmt Öcalan felst lýðræðisleg sjálfstjórn í því þegar almúginn skipuleggur sig í sjálfstæðar grasrótarhreyfingar sem byggja meðal annars á hugmyndum um láréttar samfélagslegar formgerðir, frekar en stigveldi. Lýðræðislegt fylkjasamband (enska: democratic confederalism) felst í því að þessar hreyfingar mynda tengslanet þvert á landsvæði í formi fylkjasambands sem starfar út frá grasrótarlýðræði og þeirri hugmynd að samfélög stjórni sér sjálf í umboði fólksins. Markmið Rojava-verkefnisins var að stofna fylkjasamband að fyrirmynd hugmynda Abdullah Öcalan, og er því ekki um eiginlegt þjóðríki að ræða. Þrátt fyrir að Kúrdar væru stærsti þjóðernishópurinn innan fylkjasambandsins sinnti stofnskrá Rojava því hlutverki að sporna gegn yfirráðum Kúrda á svæðinu, enda kvað hún á um jafnan rétt allra þjóðarbrota til þess að iðka sína trú, viðhalda móðurmáli sínu og menningu. Þannig var hugmyndin um lýðræðislegt bandalag sett fram sem andsvar við þjóðríkinu og var markmið þess að stofna til samfélags þar sem unnið væri á flötum grunni og félagslegu stigveldi væri hafnað.

Fulltrúaráð

[breyta | breyta frumkóða]

Minnsta stjórnfarslega eining stjórnkerfisins í Rojava voru kommúnur sem samanstóðu af 30-400+ heimilum í þorpi eða borg. Þessar kommúnur hittust á tveggja vikna fresti og kusu íbúaráð sem fór í þeirra umboði með mál kommúnunnar á fundi fulltrúaráða hverfa og/eða þorpa (enska: People’s council). Þriðja stig stjórnskipunar Rojava voru kosnir fulltrúar úr fulltrúarráðunum sem mynduðu héraðsráð (enska: District people’s council), en þar sátu einnig fulltrúar stjórnmálaflokka og félagasamtaka. Að lokum sátu fulltrúar héraðsráðs allra héraða, auk fulltrúa TEV-DEM Í MBRK ráðinu, sem var umfangsmesta stjórnfarslega eining hverrar kantónu. Ráð hverrar kantónu hittist að lokum til þess að ræða þau mál sem komu öllum íbúum Rojava við. Þess má þó geta að ráðið í heild sinni hafði fá tækifæri til þess að koma saman sökum átaka sem komu í veg fyrir ferðafrelsi milli kantónanna þriggja. Á öllum stigum stjórnkerfisins í Rojava var sérstakt kvennaráð til þess að tryggja að áform stofnskrár Rojava um kynjajafnrétti væri framfylgt.

Frá stofnun fylkjasambandsins Rojava átti það undir högg að sækja frá skæruliðasamtökunum Jabhat al-Nusra og Daesh. Auk þess hótaði Erdogan, forseti Tyrklands, ítrekað hernaðaríhlutun á landsvæðið, en það átti landamæri við Tyrkland. Tyrknesk stjórnvöld óttuðust að YPG og YPJ, hersveitir Rojava, næðu að tengja saman allar kantónur fylkjasambandsins og leggja þar með undir sig meirihluta landamæra Tyrklands við Sýrland. Auk þess taldi Tyrklandsstjórn sér stafa ógn af samstarfi PYG-flokksins í Rojava og Kúrdíska verkamannaflokksins, PKK, í Tyrklandi.

Varnarsveitirnar YPG og YPJ nutu stuðnings bæði frá Bandaríkjunum og Rússlandi, meðal annars með loftárásum á sveitir Daesh á svæðinu.

Eftir endalok meginhluta sýrlensku borgarastyrjaldarinnar gerðu ný stjórnvöld Sýrlands áhlaup þar sem þau lögðu undir sig allt að 80% af yfirráðasvæði Rojava í janúar 2026. Fylkjasambandið gerði að endingu samning við nýju sýrlensku stjórnina um innlimun og fulla aðlögun landsvæðisins að sýrlenska ríkinu. Rojava leið þar með undir lok þann 20. ágúst 2026.[1][2][3][4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Hasano, Mahmoud og Taha, Jaidaa (19 janúar 2026). „Syria government, Kurdish forces agree sweeping integration to end clashes“. Reuters. Sótt 19 janúar 2026.
  2. „Syrian Kurdish leader says integration with Damascus complete“. Al Arabiya. 20 ágúst 2026. Afrit af uppruna á 21 ágúst 2026. Sótt 20 ágúst 2026.
  3. Lister, Tim (18 janúar 2026). „Syria's military has seized swathes of Kurdish-held territory. Here's what we know“. CNN (enska). Afrit af uppruna á 28 janúar 2026. Sótt 19 janúar 2026.
  4. „22/01 Emergency Update“. Rojava Information Center (bresk enska). 23 janúar 2026. Afrit af uppruna á 31 janúar 2026. Sótt 26 janúar 2026.