Forsíða
61.152 greinar á íslensku.
Írena frá Aþenu
Írena frá Aþenu var austrómversk keisaraynja. Hún var gift Leó 4., sem var keisari frá 775 til dauðadags árið 780. Eftir dauða Leós var Írena ríkisstjóri austrómverska keisaradæmisins frá 780 til 790 á meðan sonur hennar, Konstantínus 6., var ómyndugur. Þegar Konstantínus lést árið 797 varð Írena sjálf ríkjandi keisaraynja frá 797 til 802.
Írena keisaraynja var fyrsta konan sem fór formlega með völd í austrómverska keisaradæminu. Hún átti meðal annars frumkvæði að því að kalla saman annað Níkeuþingið og fyrir því að stöðva helgimyndabrot tímabundið. Hún var einnig þekkt fyrir rausnarlega efnahagsstefnu sína og fyrir að vera sérlega vinsamleg gagnvart klaustrum. Hún naut ekki eins mikillar virðingar í Vestur-Evrópu. Bæði Leó 3. páfi og Karlamagnús Frankakeisari töldu það viðurstyggð að kona færi með pólitísk völd og neituðu báðir að viðurkenna vald hennar sem keisaraynju Býsansríkisins.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 20. júlí: Andy Burnham tekur við sem forsætisráðherra Bretlands.
- 8. júlí: Vopnahléi lýkur í Íransstríðinu.
- 29. júní: Keiko Fujimori (sjá mynd) vinnur forsetakosningar í Perú.
- 26. júní: Að minnsta kosti 1.400 manns farast eftir jarðskjálfta í Venesúela.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Lindsey Graham (11. júlí) • Bonnie Tyler (8. júlí) • Megas (6. júlí) • Þrúður Vilhjálmsdóttir (5. júlí)
20. júlí
- 2001 - Gríðarleg mótmæli áttu sér stað þegar fundur 8 helstu iðnríkja heims hófst í Genúa á Ítalíu. Einn mótmælandi, Carlo Giuliani, var skotinn til bana af lögreglumanni.
- 2011 - Sameinuðu þjóðirnar lýstu yfir hungursneyð í Sómalíu.
- 2011 - Goran Hadžić var handtekinn í Serbíu. Hann var sá síðasti af 161 sem Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir fyrrverandi Júgóslavíu handtók fyrir glæpi gegn mannkyni.
- 2012 - Skotárásin í Aurora: 12 létust og 58 særðust þegar maður hóf skothríð í kvikmyndahúsi í Aurora í Colorado þar sem kvikmyndin The Dark Knight Rises var sýnd.
- 2015 - Bandaríkin og Kúba endurreistu stjórnmálasamband og bundu enda á 54 ára illdeilur sín á milli.
- 2015 - Sprengjutilræðið í Suruç: 33 létu lífið í sprengjutilræði í Suruç í Tyrklandi.
Systurverkefni
|
|