Forsíða
60.878 greinar á íslensku.
Simón Bolívar
Simón Bolívar var frelsishetja Suður Ameríku. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu á þeim slóðum sem nú eru löndin Venesúela, Kólumbía, Ekvador, Perú, Panama og Bólivía. Þar, líkt og í öðrum löndum Rómönsku Ameríku, er hann talinn mikil hetja. Hann fæddist í Karakas. Árið 1802, kvæntist hann Maríu Teresu Rodríguez del Toro y Alaysa, hún lést ári síðar. Hann var fyrsti forseti Lýðveldisins Bólivíu er það var stofnað 1825. Segja má að hann sé eins konar Jón Sigurðsson eða George Washington Rómönsku Ameríku, en þar er hann stundum kallaður „El Libertador“, eða Frelsarinn.
Vissir þú...

- … að óklárað minnismerki af frumbyggjaleiðtoganum Æra Fáki í Dimmufjöllum í Suður-Dakóta yrði stærsta myndastytta í heimi ef það væri klárað?
- … að aldrei er sagt í Biblíunni að vitringarnir þrír hafi verið þrír talsins, heldur eru þeir aðeins taldir þrír samkvæmt hefð?
- … að tónlist úr James Bond-myndinni Njósnarinn sem elskaði mig var notuð í hljóðmynd íslensku útvarpsþáttanna um Harrý og Heimi.?
- … að hætt var við sýningu kvikmyndarinnar Síðasta freisting Krists í Ríkisútvarpinu árið 1997 eftir kvartanir yfir guðlasti frá Ólafi Skúlasyni biskupi?
- … að Atahualpa (sjá mynd), síðasti keisari Inkaveldisins, greiddi landvinningamanninum Francisco Pizarro heilt herbergi af gulli í skiptum fyrir lausn sína úr haldi árið 1533, en var tekinn af lífi eftir að lausnargjaldið var greitt?
Fréttir

- 24. mars: Þingkosningar fara fram í Danmörku. Jafnaðarmannaflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra (sjá mynd) tapar miklu fylgi en vinnur þó flest þingsæti.
- 8. mars: Mojtaba Khamenei er valinn æðsti leiðtogi Írans.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Lionel Jospin (22. mars) • Nicholas Brendon (20. mars) • Robert Mueller (20. mars) • Chuck Norris (19. mars) • Jürgen Habermas (14. mars) • Hjálmar H. Ragnarsson (13. mars)
6. apríl
- 2010 - Karl og kona urðu úti á Emstrum eftir að hafa villst þangað á bíl á leið frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Kona sem var með þeim bjargaðist.
- 2010 - Þingkosningar fóru fram í Bretlandi. Enginn flokkur náði hreinum meirihluta sem leiddi til stofnunar fyrstu samsteypustjórnar Bretlands í 36 ár.
- 2012 - Þjóðfrelsishreyfing Azawad lýsti yfir sjálfstæði Azawad frá Malí.
- 2014 - Rússneski fáninn var dreginn að húni í mótmælum í Donetsk og Karkiv í Úkraínu.
- 2017 - Borgarastyrjöldin í Sýrlandi: Bandaríkjaher skaut 59 loftskeytum á flugstöð í Sýrlandi vegna gruns um að efnavopnum hefði verið beitt gegn bæ í höndum uppreisnarmanna.
- 2020 – Bandaríkjastjórn lýsti því yfir að litið væri á Rússnesku keisarahreyfinguna sem hryðjuverkasamtök.
- 2021 - Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm um að sóttvarnalæknir hefði gengið lengra en sóttvarnalög heimiluðu með því að skikka fólk sem hafði í hús að venda á Íslandi til að sæta fimm daga sóttkví í til þess gerðu sóttvarnarhúsi.
- 2024 - Íbúar í Kristjaníu í Kaupmannahöfn hófu að rífa upp götuna Pusher Street til að mótmæla fíkniefnagengjum.
Systurverkefni
|
|