1587
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1587 (MDLXXXVII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Johann Bockholt lét af embætti hirðstjóra.
- Gísli Jónsson biskup fékk konung til að leggja 32 jarðir til styrktar prestum í fátækustu brauðum landsins.
- Gísli Skálholtsbiskup fór í Kaldaðarnes, lét taka krossinn helga sem þar var niður, flytja hann í Skálholt og brjóta hann. Þegar biskup veiktist og lést skömmu síðar kenndi almenningur krossbrotinu um.
- Ný lög sett um stofnun og slit hjúskapar þar sem meðal annars var tekið á „óvissu og óskikkanlegheitum í hjúskaparmálum“.
- Björn Sturluson skáld og smiður á Þórkötlustöðum í Grindavík og Helgi Úlfhéðinsson tengdafaðir hans drápu Ingimund Hákonarson á Stað í Grindavík.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 4. júní - Árni Gíslason sýslumaður á Hlíðarenda (f. um 1520).
- 3. september - Gísli Jónsson Skálholtsbiskup (f. um 1515).
- Tómas Eiríksson, prestur og síðasti ábóti í Munkaþverárklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. janúar - Japanski stríðsherrann Toyotomi Hideyoshi endaði stjórn Portúgals á höfn Nagasaki. Hann náði yfirráðum yfir Kyushu-eyju síðar.
- 8. febrúar - María Stúart Skotadrottning var hálshöggvin í Fotheringhay-kastala í Englandi fyrir meinta þátttöku í morðtilræði gegn frænku sinni, Elísabetu 1..
- 20. apríl - Stríð Búrma og Síams: Umsátur Búrma yfir Ayutthaya, höfuðborg Konungsríkisins Ayutthaya endaði eftir 6 mánuði.
- 29. apríl - Francis Drake, enski skipsherrann, gerði árás á Cádiz og eyðilagði eða sökkti 30 spænskum skipum.
- 22. júlí - Walter Raleigh kom á fót fyrstu ensku byggðinni í Ameríku.
- 19. ágúst - Sigmundur 3. Vasa var kjörinn konungur Póllands. Hluti aðalsmanna studdi Austurríkiskeisarann Maximilian 3. sem konung og leiddu þær deilur til Pólska erfðastríðsins (1587-1588).
- 14. október - Maximilian erkihertogi gerði umsátur um Kraká. Því lauk 6 vikum síðar þegar hann hörfaði með her sinn.
- Boris Godúnov kom á vistarbandi rússneskra bænda.
- Hungursneyð var í Mingveldinu í Kína.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 8. maí - Viktor Amadeus 1., hertogi af Savoja (d. 1637).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 28. janúar - Francisco Hernández de Toledo, náttúrufræðingur og hirðlæknir Spánarkonungs.(f. 1514).
- 8. febrúar - María Stúart, Skotadrottning (f. 1542).